jæja þá verð ég víst að brjóta ísinn í þriðja skipti þar sem mínir kæru sambýlismenn viðrast ekki hafa nokkurn áhuga á að segja ekkvað við ykkur :Þ En hvað getur maður gert...
Einhver tjáði mér það um daginn að stefáni fyndist ég vera mest utanvið mig manneskja sem hann þekkti. Ég spyr nú bara hvað á það eilega aðþýða! Er ég utanvið mig..segiði satt!! Ég meina, ég er oft að hugsa um margt í einu, en það er bara að því að það er svo mikið að gera. Ef einhver væri að gera allt þetta sem ég er að gera í einu þá mundi hann örugglega líka vera utanvið sig af og til. Einstaka "ha" af og til...StArnar ég er sko ekki með athyglisbrest :Þ Þú ert bara alltaf að rugla í mér!!
En að öðru. Stefán er kominn lang leiðina með að verða frægur á íslandi, maður heyrir af og til úr stofunnu " ahh sjáðu þarna er ég, sjáðu þarna á bak við" "ég kem í næstu auglýsingu á eftir þessari" og ekki nó með það, þá verður krókamýrin miðpunkturinn í nýjasta sköpunarverki hans. Ég fékk að fylgjast með tökum og inní stofu og hlustaði svo á tökurnar sem fóru fram inní herberginu mínu. Var ekkert mikið að fylgjast með þeim...það var nó að heyra brakið í rúminu! Þannig að það gengur held ég bara ágætlega hjá karlmanninum á heimilinu.
Nú Vala Hrönn er að vinna á leikskólanum Hjalla svo ég taki það nú fram eitt skipti fyrir öll..það er nebbla enn verið að spurja mig hvernig henni líkar í skólanum! Kellan er á leiðinni að kaupa sér sjálfrennireið og er hún komin niður í tvo bíla sem koma til greina. Það verður spennandi að fylgjast með hver verður fyrir valinu..annars er ég farin að sjá hana skuggalega lítið þessa dagana. Vaknar fyrir allar aldir og þegar hún kemur heim er ég farin á æfingu eða að vinna og þegar ég kem loksins heim þá er mín bara sofnuð inni hjá sér með tölvuna í fanginu. Þá er ég rosa heimilisleg, tipla inn til hennar, tek tölvuna úr fanginu hennar og set á gólfið, Breiði sængina alveg uppað háls og kyssi hana á ennið, hvísla góða nótt. Hún malar alltaf eins og köttur þegar ég geri þetta.. ;D
En ég þá. Hvað er ég búin að verað bardúsa. Sko ég er búin að vera mikið að gera það sama gamla, vinna, skóli, æfa og dansa og allt er þetta að buga mig eins og vanalega. Ég kvarta endalaust yfir því að ég næ varla andanum og svo dettur mér í hug að taka þetta allt að mér. Ég er að reyna að venja mig af þessu!! En svona það sem er í gangi akkurat núna, var í munnlegu prófi í morgun..já blessaður. Svo fór ég til Elínar sjúkraþjálfara. Guð blessi hana Elínu mína fyrir að láta mig hafa eitt ömurlegasta æfingaprógram með hrikalega leiðinlegustu æfingum sem ég hef séð. Það má margfalda krossbandaæfingarnar með 5 og þá fær maður kannski ágæta hugmynd um hversu leiðinlegt þetta er!! Ég ætla frekar bara að finna mér nýtt bak. er það ekki hægt annars! Allavegana, þá var ég að prófa olíulitina mína í gær og ætlaði að halda áfram að mála núna en málningin vill bara ekki þorna. Svo ég greip til örþrifa ráða, kveikti á ofninum og lagði myndina uppvið og síðan tók ég báða hárblásarana á heimilinu og festi þá á stól fyrir framan. Þannig að núna er ég með tvo hárblásara á fullu inní stofu og ég vona að ég sé ekki að gera Emma brjálaðan!
Ég hef líka ákveðið að fara ekkert meira heim fyrr en um jólin..þessar helgar eru allt of stuttar til þess að það taki því að vera að skjótast þetta. Ekki það að ég dýrka ekki fjölskylduna útaf lífinu. Maður hefur bara einhvernveginn nó að gera hérna fyrir sunnan.
Ok komið gott í bili. Æltað farað tékka á olíumálverkinu mínu ;D
14. nóvember 2007 klukkan 15:04
Stefán Friðrik Friðriksson 3 athugasemdir
Jæja kominn tími á nýtt blogg og hvenær er betra að blogga en þegar maður er í Bandaríkjunum, nýbúinn að versla úr okkur allt vit og við liggjum hérna útúr grillaðar inná herberggi og Vala mongó að þykjast geta ekkvað í Sudoku. Komum hingað til Baltimore í gær og í dag er svona fyrsti dagurinn okkar hérna. Hér rignir og rignir en við erum búnar að kaupa okkur hatta og kápur þannig að það hefur ekkert að segja þó það dropi aðeins á okkur. :) klukkan er núna að verða sex og við erum að gera okkur klárar í að fara í aquarium...vitum kannski ekki almennilega hvað það hefur að geyma en við erum sannfærðar um það að þetta verði afar fróðlegt og skemmtilegt! Eftir þessa fræðsluferð ætlum við að leyfa bragðlauknum að njóta sín og fá okkur ekkvað almennilegt í goggin en við sömdum um það áðan að þegar heim á ísland er komið verður farið í átak! Sem er svosem búið að semja um nokkrum sinnum en ekkert gerist, en núna erum við ákveðnar! Það kemur bara ekkert annað til greina!!!!
En við erum að missa okkur á myndavélinni hérna þannig að við eigum eftir að setja inn mega mikið af myndum :)
Ekki spara kommentin..
Later
Bringa
26. október 2007 klukkan 21:55
Stefán Friðrik Friðriksson 5 athugasemdir
Jæja þá er maður mættur aftur á svið bloggara. Þar sem ég er farin að búa núna með jafn miklum fábjánum og ég er sjálf hlýt ég að geta sagt ykkur skemmtilegar fréttir héðan úr krókamýrinni. Nánar sagt þá erum við þrjú hérna í 100fermetra íbúð sem er alveg hreint ágætis ágæt! Fyrir utan nokkra kvilla höfum við haft það alveg ótrúlega gott hérna. Þetta byrjaði samt allt á því að við vala fluttum inn 20 ágúst, þá var EKKERT hérna inni. Við dúlluðum okkur nú samt ótrúlega mikið hérna fyrstu dagana, önnur svaf á bedda og hin á dýnu við hliðiná. Eftir svona 3 daga fékk ég nó, keyrði norður á miðvikudegi og sótti allt mitt innbú og gat sofið í rúminu mínu sömu nótt. Vala hins vega þrjóskaðist lengur við og svaf á dýnunni sinni nokkrar nætur í viðbót þar til keypt var risarúm sem er það eina sem kemst inn til hennar núna. Það fór að tínast í búið og einhverstaðar með því þvældist Stefán hérna inn. Þannig að núna á Stefán tvo yndislega sambýlismenn sem eru alltaf almennilegir við hann og hafa alltaf hljótt þegar hann er að reyna að hvíla sig, biðja hann aldrei að fara með ruslið í sorpu og hvað þá taka úr vélinni og ganga frá eftir matinn. Þetta gerum við allt saman fyrir hann með bros á vör!!! ;) séns...
En það er ekki búið að ganga klakklaust fyrir sig að flytja hingað inn. Ég ákvað að taka að mér að festa hérna upp veggfóðraðar spónaplötur á einn vegginn hérna og það var frekar lengi í vinnslu, en er þó komið upp núna. Við sambýlingarnir hjálpuðumst að að bora og skrúfa! Síðan ákvað ein leiðsla inná baði að vera ekki alveg nógu föst við aðra þannig að þegar við loksins fengum okkur þvottavél fór að renna vatn um þessa leiðslu sem leiddi til þess að allt fór á flot undir parketinu inni hjá mér og fyrir framan það. Þá var ég einmitt ný búin að koma mér fyrir og óhreina tauið orðið yfirfullt. Þannig að ég þurfti að fara með allt mitt hafurtask fram í stofu á meðan parketið var rifið upp og í ljós kom að veggurinn var allur myglaður!!! Sem hafði valdið því að ég var búin að vera lasin í viku! Allaveg þá gerðist þetta fyrir svona 3 vikum og ég svaf fyrst í rúminu mínu í gær nótt!! Þannig að núna er komin október og ég er loksins komin í herbergið mitt.
Ég verð að segja þetta gott í bili..ég og vala erum búnar að vera virkilega sorglegar í dag..eins og flesta aðra daga reyndar. Þannig að við ætlum að kíkja í bíó með Helgu. En svona dæmi um sorglegan/venjulegan dag hjá okkur hér á sambýlinu; Vala var lasin í dag, sem sagt fór ekki í vinnuna. Ég fór í skólan fram á hádegi og kom síðan heim. Við horfðum á Harry Potter í 3 tíma og þá var okkur farið að líða illa af hreyfingaleysi þannig að við ákváðum að hreyfa á okkur rassgatið. Tókum rúnt í Smáralind ;) það er sko exercise í lagi!! Þegar heim var komið var farið attur í stuttbuxur og aftur lagst upp í sófa, með sitthvora fartölvuna á lærunum. Horfðum á skjá einn og rúv þar til við vorum farnar að spjalla saman á msn!! Þá svona var nó komið!!!
Endilega kommenta og skrifa á gestabókina, annars nennum við þessu ekki :Þ